Geislasverðafélag íslands eða Saber Academy – Reykjavík hefur þjálfara sem eru vottaðir samkvæmt Saber Academy International kerfinu. (Saber Academy International) Þetta þýðir að við bjóðum upp á grunnnámskeið í geislaverðum sem hluta af því að skrá sig í hópinn. Námskeiðin fara fram ársfjórðungslega og eru fyrir fólk 14 ára og eldri. Við höfum einnig reglulega námskeið fyrir fullorðna – sjá stundatöflu.
Þetta námskeið fjallar um öll grunnatriðin sem þarf til að koma og æfa með okkur og búa til sviðs bardaga. Best er að sjá komandi námskeið í gegnum Facebook viðburði félagsins. Við mælum með að fólk taki námskeiðið (vinnustofuna) áður en það kemur á venjulegar æfingar. Hins vegar, ef einhver vill ekki bíða eftir næstu vinnustofu, þá eru þjálfararnir tilbúnir að kenna viðkomandi einstaklingsbundið. Best er bara að hafa samband við okkur.