Þjálfaranir

Þessi síða kynnir þér þjálfara geislasverðaklúbbsins og sérsvið þeirra. Hér má einnig finna lista yfir núverandi stjórnarmenn fyrir árið 2026.

Stoney

Anna

Smari

Skoðaðu þjálfarateymið hér að neðan

Aðalþjálfari • Meðstofnandi • Forseti • Sérfræðingur í kóreógrafíu og flæði

Stoney er Grand Master klúbbsins og einn af upphaflegum stofnendum hans. Með sterka áherslu á kvikmyndatöku, kóreógrafíu og hreyfingu sem byggir á sviðsframkomu færir hann kvikmyndalegt auga inn í geislasverðabardaga og mótar skapandi stefnu klúbbsins.

Hann hefur deilt efni um geislasverðaflæði á YouTube síðan 2020, þar sem hann hefur stöðugt slípað listina og hvatt aðra til að kanna tjáningarfulla hlið sverðahreyfinga. Stoney er þekktur fyrir að hvetja iðkendur til að stíga út fyrir þægindarammann og víkka sjóndeildarhringinn — bæði tæknilega og skapandi.

Sem forseti klúbbsins gegnir hann lykilhlutverki í að móta framtíðarsýnina, styðja meðlimi og byggja upp samfélag þar sem allir geta vaxið.

Hann sér einnig um alla samfélagsmiðla klúbbsins.

Aðalþjálfari • Meðstofnandi • Ritari • Grunnatriði

Anna, þekkt í geislasverðasamfélaginu sem Grace Loobian the Grey, er reyndur geislasverðalistamaður með yfir 15 ára reynslu. Hún stofnaði klúbbinn ásamt Stoney árið 2023 og hefur verið drifkraftur í að móta þjálfunarmenningu hans og samfélagsanda.

Sem vottaður grunnnámskennari hjá Saber Academy International sameinar Anna tæknilega nákvæmni, hefur hlýlegann, hvetjandi kennslustíl á hverri æfingu. Þótt hún sé einn af aðalþjálfurum klúbbsins hefur hún sérstakan áhuga á að vinna með byrjendum — að hjálpa þeim að byggja upp sterkan grunn, sjálfstraust og sanna ánægju af geislasverðabardagalistinni.

Fyrir utan æfingarnar sinnir Anna einnig hlutverki ritara klúbbsins og styður skipulag, samskipti og langtímaþróun félagsins.

Aðstoðarþjálfari • Gjaldkeri • Fullorðnasti fullorðinn

Smári er einn af aðstoðarþjálfurum klúbbsins og ber með stolti titilinn „Fullorðnasti fullorðinn“ í teyminu. Sem gjaldkeri klúbbsins sér hann um að allt gangi hnökralaust á bak við tjöldin. Á æfingum kemur hann með yfirvegaða og jarðbundna nálgun á geislasverða þjálfun.

Þótt hann sé nýjastur þjálfaranna þegar kemur að geislasverðum hefur Smári mikla reynslu bæði sem handboltamaður og þjálfari, sem gefur honum sterkan grunn í hreyfingu, samhæfingu og líkamsvitund. Þjálfun hans leggur áherslu á grunnatriði, skýr markmið og að byggja upp rökréttar, sögudrifnar kóreógrafíur sem lýta nátturlega út og eru tjáningaríkar.

Hann hefur einstakt lag á að hjálpa iðkendum að nota allan líkamann til að leika, túlka og gefa persónum sínum líf — sem gerir hann að ómetanlegum hluta þjálfarateymisins.


Stjórn félagsins 2026

Stoney

Forseti félagsins

Anna

Ritari félagsins

Smari

Gjaldkeri félagsins

Sigga

Stjórnarkona • Þjálfari í þjálfun

Stjáni

Stjórnarmaður félagsins

Fox

Stjórnarmaður félagsins • Þjálfari í þjálfun

Scroll to Top